11.07.17 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ola Aina lánaður frá Chelsea til Hull City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hull City hefur fengið varnarmanninn Ola Aina að láni frá Chelsea.
Aina, sem er tvítugur bakvörður, kom lítið við sögu hjá Chelsea á síðustu leiktíð. Hann kom þrisvar inn á sem varamaður í ensku úrvalsdeildinni og fékk að byrja tvo leiki í deildabikarnum.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Hull fær til sín síðan Rússinn Leonid Slutsky tók við liðinu. Slutsky, sem er fyrrum landsliðsþjálfari Rússlands, þekkir Roman Abramovich, eiganda Chelsea, vel.

„Ég er mjög ánægður að vera hérna, að byrja nýjan kafla á ferli mínum,\" sagði Aina við heimasíðu Hull.
Aina er fæddur í Lundúnum og hefur spilað unglingalandsleiki fyrir England, en hann á ættir að rekja til Nígeríu og hefur tekið þá ákvörðun að spila fyrir landslið Nígeríu.