Fotbolti.net
11.07.17 - 23:30
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Ron-Robert Zieler til Stuttgart (Staðfest)

Ron-Robert Zieler er farinn aftur til Þýskalands

Ron-Robert Zieler er farinn aftur til Þýskalands

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Ron-Robert Zieler hefur yfirgefið herbúðir Leicester og gengið til liðs við Stuttgart í Þýskalandi. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við þýska félagið.
Zieler kom til Leicester frá Hannover á frjálsri sölu síðasta sumar og átti að veita Kasper Schmeichel samkeppni um markvarðarstöðuna hjá Leicester. Hann spilaði alls níu leiki fyrir Leicester í vetur og þótti ekki standast væntingar.

Nú hefur hann fært sig aftur til heimalandsins en Stuttgart eru nýkomnir aftur í Bundesliguna eftir að hafa spilað í Bundesligu 2 á síðustu leiktíð.

Zieler lék fyrir unglingalið Manchester United á sínum tíma en fékk aldrei leik með aðalliðinu. Hann á 6 landsleiki að baki fyrir aðallið Þýskalands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.