Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 11. júlí 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Real Madrid lánar Hakimi til Dortmund (Staðfest)
Achraf Hakim.
Achraf Hakim.
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur fengið varnarmanninn Achraf Hakimi á láni frá Real Madrid.

Lánssamningurinn gildir næstu tvö tímabilin.

Hinn 19 ára gamli Hakrimi á 17 leiki að baki með aðalliði Real Madrid en hann fær nú meiri reynslu í Þýskalandi.

Hakimi getur spilað sem hægri bakvörður eða hægra megin á miðjunni.

Í sumar var Hakimi fastamaður í landsliði Marokkó á HM í Rússlandi en hann spilaði meðal annars allan leikinn í 2-2 jafntefli gegn Spánverjum í riðlakeppninni.
Athugasemdir
banner