Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 11. júlí 2020 19:38
Brynjar Ingi Erluson
Grikkland: Ögmundur hélt hreinu í jafntefli
Ögmundur Kristinsson
Ögmundur Kristinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Ögmundur Kristinsson héltu hreinu er Larissa gerði markalaust jafntefli við Lamia í grísku úrvalsdeildinni í dag.

Larissa leikur í fallriðlinum í grísku úrvalsdeildinni en Ögmundur hefur verið einn besti leikmaður liðsins á þessari leiktíð.

Hann er nú þegar búinn að semja við Olympiakos og gengur hann í raðir félagsins eftir þetta tímabil.

Ögmundur fagnaði því með að halda hreinu gegn Lamia í dag en þetta var í tíunda sinn í deildinni sem hann heldur hreinu. Hann hefur tvisvar haldið hreinu í úrslitakeppninni og átta sinnum í deildinni sjálfri.

Larissa hefur þegar tryggt sæti sitt í deildinni en síðasta umferðin fer fram eftir viku.
Athugasemdir
banner
banner