Michail Antonio skoraði fernu fyrir West Ham í 4-0 sigri á Norwich. Hann fær auðvitað tíu í einkunn frá staðarmiðlinum football.london.
Einkunnagjöfina í heild sinni má lesa hérna.
Einkunnagjöfina í heild sinni má lesa hérna.
„Þetta er stórkostleg tilfinning," sagði Antonio í viðtali eftir leikinn. „Þegar ég hafði skorað fyrstu tvö þá sá ég að þeir voru frekar opnir til baka. Þetta er fyrsti boltinn sem ég tek heim með mér og vonandi verða þeir fleiri í framtíðinni."
Antonio er fyrsti leikmaðurinn sem skorar fernu fyrir West Ham frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar 1992-93.
Mörkin hans í leiknum má sjá hér að neðan.
Athugasemdir