Fotbolti.net
11.07.20 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liverpool sagt hvernig eigi að koma Thiago fyrir

Thiago er sagður í leit að nýrri áskorun.

Thiago er sagður í leit að nýrri áskorun.

Canon

Mynd: Getty Images

Glen Johnson, fyrrum leikmaður Liverpool, er á þeirri skoðun að Liverpool eigi að rífa upp veskið og kaupa Thiago Alcantara af Bayern Munchen.

Thiago er spænskur miðjumaður sem steig sín fyrstu meistaraflokksskref með Barcelona fyrir rúmum áratugi síðan.
Johnson er búinn að hugsa út lausn þar sem Thiago getur passað inn í byrjunarliðið hjá Liverpool. Johnson vill sjá Thiago fyrir aftan fremstu þrjá, Mo Salah, Roberto Firmino og Sadio Mane og fyrir framan þá Jordan Henderson og Fabinho á miðjunni.

Ljóst er þá að Gini Wijnaldum, sem oft er á miðjunni, hjá Liverpool, yrði ekki í liðinu ef Johnson fengi að ráða. Johnson vill fá Thiago inn sem skapandi 'tíu' sem gæti splúndrað upp varnir þegar athyglin yrðu á fremstu þremur leikmönnunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.