Fotbolti.net
11.08.16 - 11:41
Elvar Geir Magnússon

Borja Baston til Swansea (Staðfest)

Borja Baston til Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur keypt sóknarmanninn Borja Baston á 15,5 milljónir punda en sú upphæð er félagsmet.

Borja kemur frá Atletico Madrid en hann skrifaði undir fjögurra ára samning á Liberty leikvanginum og fær treyju númer 10. Andre Ayew var með það númer.
Borja er 23 ára gamall en hann hefur farið víða á láni undanfarin ár. Á síðasta tímabili skoraði hann 18 mörk á láni hjá Eibar í spænsku úrvalsdeildinni.

Swansea hefur leik gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. Þar mætast Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.