Fotbolti.net
11.08.16 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Demichelis til Espanyol (Staðfest)

Demichelis til Espanyol (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Argentínski miðvörðurinn Martin Demichelis er búinn að skrifa undir eins árs samning við spænska félagið Espanyol.

Demichelis verður 36 ára í september en er þrátt fyrir það enn í fullu fjöri eftir að Manchester City neitaði að bjóða honum nýjan samning í sumar.
Demichelis var oft í byrjunarliði Man City á tíma sínum hjá félaginu og á hann auk þess 50 landsleiki að baki.

Varnarmaðurinn hefur reynslu úr spænsku deildinni því hann lék þar í tvö ár með Malaga áður en hann fór til Englands. Fyrir það var hann leikmaður Bayern í sjö ár og spilaði yfir 200 leiki fyrir félagið.

Demichelis, nou jugador del #RCDE. ¡Bienvenido, #DemichelisPerico! https://t.co/GnbW2xVueS pic.twitter.com/WMnCcbFl3T

— RCD ESPANYOL OFICIAL (@RCDEspanyol) August 10, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.