11.08.16 - 11:09
Magnús Már Einarsson
Jonathan Woodgate ráðinn til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jonathan Woodgate, fyrrum varnarmaður enska landsliðsins, hefur verið ráðinn njósnari hjá Liverpool.
Woodgate mun einbeita sér að Suður-Evrópu en líklegt er að hann hafi aðsetur á Spáni og skoði leikmenn þar.
Hinn 36 ára gamli Woodgate mun einnig skoða leikmenn í Portúgal.

Woodgate var á mála hjá Middlesbrough á síðasta tímabili en hann hefur nú lagt skóna á hilluna.
Á ferli sínum spilaði Woodgate einnig með Leeds, Newcastle, Tottenham, Stoke og Real Madrid.