11.08.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Marcelino ekki lengur stjóri Villarreal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marcelino Garcia Toral er ekki lengur þjálfari Villarreal á Spáni, sem hann hefur stýrt við frábæran orðstír síðustu þrjú ár.
Marcelino náði að koma liðinu í meistaradeildarsæti á síðasta tímabili og var á dögunum nefndur sem 14. besti knattspyrnustjóri heims af <i>FourFourTwo</i>.

Fregnirnar koma öllum að óvörum enda hefur Marcelino verið virkur í félagsskiptaglugganum í sumar og fengið menn á borð við Roberto Soriano, Alexandre Pato og Nicola Sansone til félagsins.
Manuel Pellegrini, fyrrverandi þjálfari Manchester City, er talinn líklegur arftaki en hann þjálfaði Villarreal í fimm ár og komst með liðið í undanúrslit Meistaradeildarinnar árið 2006.