Fotbolti.net
11.08.16 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

McNair og Love til Sunderland (Staðfest)

Samstíga strákarnir!

Samstíga strákarnir!

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt varnarmennina Paddy McNair og Donald Love frá Manchester United fyrir samtals 5,5 milljónir punda.

Báðir eru þeir 21 árs og skrifuðu undir fjögurra ára samninga.
McNair spilaði fyrir Norður-Írland á EM 2016 en hann lék sinn fyrsta leik fyrir United í september 2014 og lék 27 leiki fyrir félagið.

Love er Skoti sem var lánaður til Wigan síðasta tímabil. Hann spilaði tvo aðalliðsleiki fyrir United, þann fyrri gegn Sunderland í febrúar.

Stjóri Sunderland er David Moyes sem þekkir þessa stráka frá veru sinni á Old Trafford. Hann keypti sinn fyrsta leikmann til félagsins í síðustu viku þegar hann fékk varnarmanninn Papy Djilobodji frá Chelsea fyrir 8 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.