11.08.17 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson
Bruno Martins Indi keyptur til Stoke (Staðfest)

Bruno Martins Indi í leik með Stoke á síðasta tímabili

Mynd: Getty Images

Bruno Martins Indi í leik með Stoke á síðasta tímabili

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Stoke City hefur fest kaup á Bruno Martins Indi frá Porto í Portúgal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá enska félaginu í dag.
Hollenski varnarmaðurinn var á láni hjá Stoke frá Porto á síðustu leiktíð en Stoke ákvað að nýta sér kaupréttinn á honum og fá hann alfarið til félagsins.
Viðræður gengur erfiðlega við Porto og í fyrstu var talið að hann kæmi alls ekki en nú hefur Stoke hins vegar staðfest kaup á honum.
Hann lék 37 leiki á síðasta tímabili og skoraði eitt mark. Þá hefur hann leikið 33 landsleiki fyrir Holland og gert tvö mörk.
Hér fyrir neðan má sjá skemmtilega kynningu Stoke á leikmanninum á Twitter.

👀🌳 Tree people assemble...#BrunosBack#SCFC 🔴⚪️ pic.twitter.com/hWATKvaG2e
— Stoke City FC (@stokecity) August 11, 2017