Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. ágúst 2019 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd kaupir efnilegan leikmann frá Mónakó (Staðfest)
Hannibal Mejbri semur við Manchester United
Hannibal Mejbri semur við Manchester United
Mynd: Twitter
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United er búið að ná samkomulagi við Mónakó um kaup á Hannibal Mejbri. Þetta kemur fram á heimasíðu enska félagsins í dag.

Mejbri er 16 ára gamall en hann lék með unglinga- og varaliði Mónakó í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð auk þess sem hann á fjölmarga leiki að baki fyrir U16 ára landslið Frakklands.

Man Utd hefur verið í viðræðum við Mónakó síðustu vikur en nú hafa liðin náð saman. Hann skrifaði undir langtímasamning og er kaupverðið talið nema um 10 milljónum evra.

Mejbri er með afar áhugaverð hárgreiðslu en hún minnir óneitanlega mikið á hárgreiðslu Marouane Fellaini, sem yfirgaf Man Utd í byrjun árs.


Athugasemdir
banner
banner