Fotbolti.net
11.10.16 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Chamakh orðinn liðsfélagi Arons Einars (Staðfest)

Chamakh gerði sttutan samning við Cardiff.

Chamakh gerði sttutan samning við Cardiff.

Canon

Mynd: Getty Images

Marokkóski landsliðsmaðurinn Marouane Chamakh er orðinn leikmaður Cardiff City í Championship-deildinni. Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði spilar með Cardiff eins og flestir vita.

Neil Warnock tók nýlega við stjórnartaumunum hjá Cardiff en Chamakh spilaði undir hans stjórn hjá Crystal Palace.
Eftir velgengni í Frakklandi gekk Chamakh í raðir Arsenal 2010. Hann var lánaður til West Ham áður en hann gekk í raðir Palace og lék með liðinu 2013-2016.

Cardiff hefur ekki farið vel af stað í ensku B-deildinni og er í 23. sæti.

„Cariff er lið sem ætti að vera á toppnum og ég get ekki beðið eftir því að skora fyrir nýtt félag,\" segir Chamakh.

Samningur hans er til janúar en efasemdir eru um líkamlegt ástand leikmannsins.
Chamakh er búinn að snoða sig.

Chamakh er búinn að snoða sig.

Canon

Mynd: Cardiff

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.