Fotbolti.net
11.11.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Sonja Björk og Oktavía í KR (Staðfest)

Sonja Björk spilar með KR að nýju næsta sumar.

Sonja Björk spilar með KR að nýju næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Sonja Björk Jóhannsdóttir er gengin í raðir KR að nýju eftir að hafa tekið sér árs frí frá knattspyrnu. Þá er Oktavía Jóhannsdóttir komin til félagsins frá Stjörnunni og Hrafnhildur Agnarsdóttir hefur framlengt samningi sínum við félagið. Þetta kom fram á vef KR, KR.is.
Hrafnhildur er markvörður og hefur leikið 47 leiki með mfl. KR. Hrafnhildur lék með yngri flokkum KR og síðan mfl. frá 2010.

Oktavía kemur til KR frá Stjörnunni. Hún lék með yngri flokkum Stjörnunnar og síðan sjö leiki með mfl. félagsins. Hún lék einnig þrjá leiki með U17-landsliðinu.

Sonja kom til KR árið 2009 frá Hetti. Sonja skoraði 18 mörk í 64 leikjum með mfl. KR á árunum 2009 til 2011 en hún lék ekki með KR í sumar þar sem hún var í barnsburðarfríi.

Áður höfðu Guðrún María Johnson, Helena Sævarsdóttir, Hrafhildur Fannarsdóttir og Sigrún Birta Kristinsdóttir skrifað undir samninga við KR.

KR féll úr Pepsi-deild kvenna í haust og leikur því í 1.deildinni næsta sumar.

Heimild: KR.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.