11.11.16 - 06:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Alexander Kostic kominn til Gróttu (Staðfest)

Alaxander Kostic í nýju treyjunni.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Alexander Kostic hefur gengið til liðs við Gróttu en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Hann er miðjumaður og hefur spilað allan sinn meistaraflokksferil hjá ÍR þar sem hann hefur leikið 69 leiki og skorað í þeim fimm mörk.
Alaxander ólst upp á Seltjarnarnesi og æfði hann handbolta með Gróttu í áraraðir. Hann lék svo knattspyrnu hjá KR til 2011 en þá fór hann til ÍR þar sem hann hefur verið allar götur síðan þar sem hann var fyrirliði um þriggja ára skeið.
„Það er mér mikið ánægjuefni að vera kominn á heimaslóðir og fá að spila með Gróttu í Inkasso-deildinni næsta sumar. Ég hlakka mikið til að spila undir stjórn Þórhalls Dan og með þeim fjölmörgu ungu og uppöldu Gróttustrákum sem eru í liðinu. Við þurfum stuðning allra Seltirninga á vellinum. Sjáumst í sumar. Áfram Grótta,“ sagði Alexander