11.11.16 - 22:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Birkir Freyr Sigurðsson í Njarðvík (Staðfest)

Birkir Freyr í leik með Reyni Sandgerði

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Freyr í leik með Reyni Sandgerði

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík er búið að semja við sinn fyrsta leikmann á þessu undirbúningstímabili, en sá heitir Birkir Freyr Sigurðsson og kemur frá Reyni Sandgerði. Birkir Freyr er 24 ára og á að baki 132 leiki fyrir Reyni Sandgerði.
Birkir Freyr hefur áður komið við sögu hjá Njarðvík því hann lék með félaginu í 2. og 3. flokki.
Birkir Freyr hefur áður komið við sögu hjá Njarðvík því hann lék með félaginu í 2. og 3. flokki.
„Það er mikill fengur fyrir Njarðvík að fá Birki Frey inn í félagið. Hann er örfættur leikmaður sem skapar nýja vídd í okkar leik,\" sagði Rafn Markús Vilbergsson, annar þjálfara Njarðvík, um félagsskiptin.
„Birkir er kominn með flotta reynslu þar sem hann hefur spilað fjölda leikja með uppeldisfélagi sínu, flottur karakter og duglegur leikmaður sem smellur vel inn í okkar hugmyndir. Við Snorri höfum mikinn áhuga og metnað að koma Njarðvíkurliðinu sem allra lengst og passar Birkir vel inn í þann metnað okkar,\" sagði Rafn Markús ennfremur.
Njarðvíkingar bjóða Birki Frey velkominn í sínar raðir.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur