Fotbolti.net
11.11.16 - 15:51
Magnús Már Einarsson

Guðjón Orri í Selfoss (Staðfest)

Guðjón Orri í leik með ÍBV.

Guðjón Orri í leik með ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur fengið markvörðinn Guðjón Orra Sigurjónsson til liðs við sig. Guðjón rifti samningi sínum við Stjörnuna á dögunum og nú er ljóst að hann mun spila í Inkasso-deildinni næsta sumar.

Guðjón Orri, eða Gaui Carra eins og hann er oft kallaður, skrifaði undir tveggja ára samning við Selfoss í dag.
Á Selfossi á Guðjón Orri að fylla skarð Vignis Jóhannessonar. Vignir hefur varið mark Selfyssinga undanfarin þrjú ár en hann samdi fyrr í dag við FH.

„Ég átti fund með Gunna (Borgþórsson, þjálfara Selfoss) og mér leist strax vel á hans plön og umhverfið í kringum liðið. Það er hugur í klúbbnum og mig langaði að taka þátt í því. Það var líka kominn tími á að ég færi að spila reglulega og mér fannst Selfoss vera góður kostur í þeim efnum. Svo er líka stutt heim til Vestmannaeyja,\" sagði Guðjón við Fótbolta.net í dag.

Hinn 23 ára gamli Guðjón Orri er uppalinn hjá ÍBV en hann hafði leikið allan sinn feril í Eyjum áður en hann fór í Stjörnuna síðastliðinn vetur. Guðjón var varamarkvörður hjá Stjörnunni í sumar en hann spilaði fimm leiki undir lok móts eftir að Duwayne Kerr fór til Indlands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.