Fotbolti.net
11.11.16 - 11:02
Jóhann Ingi Hafþórsson
- Kaplakrika

Guðmundur Karl og Vignir Jó til FH (Staðfest)

Frá fréttamannafundi FH í dag.

Frá fréttamannafundi FH í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Karl Guðmundsson, fyrirliði Fjölnis, er genginn til liðs við Íslandsmeistara FH en hann hefur fram að þessu aðeins leikið með Grafarvogsfélaginu. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Hann hefur alls spilað 170 leiki fyrir Fjölni og skorað í þeim 30 mörk. Guðmundur spilaði í þrjú ár í 1. deildinni með Fjölni en hann komst upp með liðinu árið 2013. Guðmundur var samningslaus og borgar FH því ekkert fyrir hann.

Fjölnir hefur vaxið mjög á síðustu árum og hefur Guðmundur verið stór partur af því.

Markmaðurinn Vignir Jóhannesson hefur einnig skrifað undir samning við FH en hann kemur frá Selfossi. Hann er fæddur 1990 og er uppalinn í Breiðabliki. Hann lék 62 deildaleiki með Selfyssingum.

Hann hefur auk þess spilað með Njarðvík og Aftureldingu en hann mun veita Gunnari Nielsen samkeppni um markvarðarstöðuna hjá FH. Vignir, eins og Guðmundur, var samningslaus og gerir tveggja ára samning við FH.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.