11.11.16 - 19:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ian Holloway tekur við QPR (Staðfest)

Holloway er kominn með nýtt starf

Mynd: Getty Images

Holloway er kominn með nýtt starf

Mynd: Getty Images
Ian Holloway er tekinn við starfi knattspyrnustjóra hjá Queens Park Rangers í ensku Championship-deildinni, en frá þessu var greint í kvöld.
Þessi 53 ára gamli knattspyrnustjóri er að taka við starfinu öðru sinni, en hann var stjóri liðsins frá 2001 til 2006. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við sitt fyrrum félag.

Holloway, sem hefur stýrt liðum eins og Blackpool og Crystal Palace upp í ensku úrvalsdeildina, tekur við starfinu hjá QPR af Jimmy Floyd Hasselbaink sem var rekinn á dögunum eftir 11 mánuði við stjórnvölin.
„Þetta er risastórt augnablik fyrir mig og ég er gríðarlega ánægður að vera kominn aftur hingað,\" sagði Holloway, sem hefur undanfarið verið að vinna sem sérfræðingur í sjónvarpi.
QPR er í 17. sæti Championship-deildarinnar, sex stigum frá fallsæti, og það er nokkuð ljóst að Holloway hefur verk að vinna á sínum gamla vinnustað.

Heimild: BBC