Fotbolti.net
11.11.16 - 18:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Nik Chamberlain aftur í Hugin (Staðfest)

Nik Chamberlain mun aftur spila í búningi Hugins

Nik Chamberlain mun aftur spila í búningi Hugins

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Enski miðjumaðurinn Nik Anthony Chamberlain hefur gengið til liðs við Hugin í 2. deild karla, en greint var frá þessu á Twitter-síðu félagsins.

Hinn þrítugi Chamberlain hefur spilað átta tímabil á Íslandi, en síðast var hann á mála sem leikmaður hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ. Þar hætti hann hins vegar að spila um mitt síðasta sumar til þess að taka við kvennaliði Þróttar í Reykjavík.
Hann mun nú taka skóna aftur fram af hillunni til þess að spila fyrir Hugin, en þar hefur hann spilað tvisvar áður og kann væntanlega vel við sig á Seyðisfirði.

Huginn mun spila í 2. deild karla á næsta tímabili eftir að hafa fallið á einhvern óskiljanlegan hátt úr Inkasso-deildinni. Flestir voru búnir að bóka Leikni F. niður fyrir lokaumferðina, en 7-2 sigur þeirra gegn HK sendi Huginsmenn niður í 2. deildina í staðinn.

Leikmannafréttir. Nik Chamberlain í Huginn. Væntum mikils af Nik sem mun styrkja liðið mikið næsta sumar.#VelkominnHeim #ÁframHuginn

— Huginn Football Club (@HuginnFC) November 11, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.