Fotbolti.net
11.11.19 - 19:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Baldur Sig í FH (Staðfest)

Baldur Sig í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Baldur Sigurðsson er genginn í raðir FH en þetta var staðfest í kvöld. Baldur skrifar undir samning út næsta leiktímabil.

Baldur kemur frá Stjörnunni þar sem hann hefur leikið frá árinu 2016 og varð bikarmeistari með félaginu árið 2018. Þar áður var hann á mála hjá SönderjyskE í Danmörku. Þá hefur hann einnig leikið með Bryne FK, KR, Keflavík og Völsungi.

Baldur hefur leikið 377 leiki í deild og bikar á Íslandi og skorað 95 mörk í þeim leikjum.

Sjá einnig: Baldur Sig sagður á leið í FH
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.