Fotbolti.net
11.11.19 - 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man City myndi leyfa Arteta að taka við Arsenal

Man City myndi leyfa Arteta að taka við Arsenal
Canon

Mynd: Getty Images

Unai Emery hefur ekki átt góðu gengi að fagna sem stjóri Arsenal. Emery byrjaði þokkalega með liðið á sínu fyrsta tímabili en það fjaraði undan gengi liðsins í fyrra og liðinu mistóskt að enda í Meistaradeildarsæti í vor.

Tímabilið í ár hefur farið illa af stað en liðið situr þó í 6. sæti deildarinnar. Arsenal liðið hefur verið langt í frá sannfærandi að undanförnu og tapað niður forskoti þegar liðið hefur náð að skora. Arsenal tapaði svo sannfærandi gegn Leicester, 2-0, á útivelli um helgina. Þá héldu margir að Emery yrði látinn fjúka en hann er með fullt traust frá stjórn félagsins.
Í dag komu fréttir frá herbúðum Manchester City og þar kemur fram að Mikel Arteta, fyrrum miðjumaður Arsenal og Everton og núverandi aðstoðarmaður Pep Guardiola, fái að yfirgefa City ef Arsenal kemur kallandi.

Arteta var í fimm ár hjá Arsenal undir lok ferils síns og var vel liðinn hjá félaginu. Arteta er talinn líklegur sem næsti stjóri Arsenal ef Emery verður látinn taka poka sinn. Samkvæmt upplýsingum sem the Sun fékk í dag þá eru engar líkur á því að City standi í vegi fyrir því ef Arteta vill taka við Arsenal.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.