Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 11. nóvember 2020 23:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Joe Gomez gæti verið frá út leiktíðina
Gomez og van Dijk verða frá vegna meiðsla
Gomez og van Dijk verða frá vegna meiðsla
Mynd: Getty Images
Joe Gomez meiddist á landsliðsæfingu í dag þegar hann sendi boltann frá sér. Gomez var að gefa boltann frá sér og enginn var nálægt honum þegar hann meiddist.

Sjá einnig:
Joe Gomez á meiðslalistann - Frá í töluverðan tíma?

Meiðslavandræði Liverpool eru því orðin töluverð því Virgil van Dijk er einnig frá næstu mánuðina vegna hnémeiðsla og Fabinho hefur glímt við meiðsli. Staðfest hefur verið að hnémeiðsli sé að ræða í tilviki Gomez og hefur hann yfirgefið herbúðir enska landsliðsins. Læknateymi Liverpool mun svo meta stöðuna.

Fyrirsögn Mirror um meiðslin er á þá leið að óttast sé að Gomez verði frá út leiktíðina.

„Ég get ekki staðfest hversu alvarleg meiðslin eru því ég hef ekki séð úr rannsóknum," sagði landsliðsþjálfarinn Gareth Southgate.

„Það sem lætur mig halda að þetta sé slæmt er að hann fann mjög mikið til. Það var enginn nálægt honum þegar atvikið á sér stað. Það eitt og sér lætur mig hafa áhyggjur. Útlitið er ekki gott. Við vonumst til að meiðslin séu ekki alvarleg en við þurfum að bíða og sjá. Það er eitt það versta sem landsliðsþjálfari að sjá menn meiðast þegar þú ert með þá að láni frá sínum félögum."
Athugasemdir
banner
banner