11.12.12 - 22:40
Hafliði Breiðfjörð
Aldís Kara Lúðvíksdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Aldís Kara ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs Breiðabliks í kvöld.

Mynd: Eva Björk Ægisdóttir

Framherjinn Aldís Kara Lúðvíksdóttir gekk í kvöld í raðir Breiðabliks úr FH en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu.
Aldís Kara er 18 ára gömul og hefur leikið með meistaraflokki FH síðan sumarið 2009.
Síðan þá spilaði hún 54 leiki í deild og bikar með FH og skoraði í þeim 53 mörk.
Hún spilaði 19 leiki með FH í sumar og skoraði í þeim sjö mörk.
Hún á að baki 15 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim 19 mörk.
Aldís Kara skrifaði undir tveggja ára samning við Breiðablik og er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til liðsins í vetur.
Fanndís Friðriksdóttir er farin í atvinnumennsku til Kolbotn í Noregi.