Fotbolti.net
11.12.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Aníta Lísa í Fylki (Staðfest) - Anna Björg framlengir

Aníta Lísa Svansdóttir er hér í leik með FH gegn Fylki. Hún mun spila með Fylki í 1. deild kvenna næsta sumar.

Aníta Lísa Svansdóttir er hér í leik með FH gegn Fylki. Hún mun spila með Fylki í 1. deild kvenna næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Aníta Lísa Svansdóttir er gengin til liðs við Fylki en hún kemur til félagsins frá FH sem hún lék með frá síðasta ári fram á mitt sumar í ár þegar hún var lánuð til ÍA í 1. deildina.
Þetta var staðfest á vef stuðningsmanna Fylkis, Fylkismenn.is, í gær en þar kemur einnig fram að Anna Björg Björnsdóttir hafi framlengt samning sinn við félagið.

Fylkir féll í 1. deild kvenna á nýliðnu tímabili og hefur verið að semja við helstu lykilmenn síðasta tímabils um að spila með þeim áfram næsta sumar.

Félagið var einnig að ljúka samingum við þær Maríu Kristjánsdóttur og Eyrúnu Huld Harðardóttur sem spila því með þeim í 1. deildinni næsta sumar eins og Anna Björg og Aníta Lísa.

Aníta Lísa spilaði 11 leiki með FH í Pepsi-deildinni og Borgunarbikarnum í sumar, flesta í byrjunarliði, áður en hún var lánuð út tímabilið til uppeldisfélags síns, ÍA, þar sem hún skoraði tvö mörk í sex leikjum.

Heimild: Fylkismenn.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.