Fotbolti.net
11.12.16 - 12:32
Jóhann Ingi Hafþórsson

Hallbera Gísladóttir til Djurgarden (Staðfest)

Hallbera hefur leikið sinn síðasta leik með Breiðabliki, í bili hið minnsta.

Hallbera hefur leikið sinn síðasta leik með Breiðabliki, í bili hið minnsta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Hallbera Guðný Gísladóttir, vinstri bakvörður landsliðsins, hefur gengið til liðs við sænska félagið Djurgarden en hún kemur til félagsins frá Breiðabliki.
Hún er þrítug og hefur síðustu ár verið einn besti leikmaður deildarinnar. Alls á hún 57 leiki með Kópavogsliðinu og á hún Íslands og bikarmeistaratitla í safni sínu í Kópavogi.

Hallbera er uppalinn á Akranesi en hún spilaði einnig í sjö ár með Val þar sem hún vann fjölmarga tila ásamt því að hafa verið atvinnumaður með Pitea í Svíþjóð og Torres á Ítalíu.

Hún er svo byrjunarliðsmaður í landsliðinu okkar þar sem hún hefur leikið 76 landsleiki og skorað þrjú mörk.

Djurgarden hafnaði um miðja deild í Svíþjóð á nýloknu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.