Fotbolti.net
11.12.19 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Klopp bað túlkinn afsökunar

Klopp bað túlkinn afsökunar
Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hóf fréttamannafund sinn eftir leikinn gegn Salzburg í gær á því að biðjast afsökunar á framkomu sinni á fréttamannafundi í fyrradag, fyrir leikinn.

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, var með á fundinum í fyrradag en þýskumælandi túlkur þýddi orð hans rangt.

<a href="https://fotbolti.net/news/10-12-2019/klopp-reiddist-ut-i-tulk-a-frettamannafundi" target="_blank">Klopp reiddist í kjölfarið og lét túlkinn heyra það.</a>

Á fréttamannafundi eftir leikinn í gær var sami túlkur mættur og hann og Klopp sættust áður en fundurinn hófst.

<i>„Afsakið, ég var fáviti,"</I> sagði Klopp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.