12.01.17 - 16:50
Magnús Már Einarsson
Narsingh til Swansea (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea hafa fengið liðsstyrk fyrir fallbaráttuna sem er framundan í ensku úrvalsdeildinni.
Swansea hefur keypt kantmanninn Luciano Narsingh frá PSV Eindhoven á fjórar milljónir punda.
Narsingh er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Swansea síðan Paul Clement tók við liðinu.
Swansea hefur keypt kantmanninn Luciano Narsingh frá PSV Eindhoven á fjórar milljónir punda.
Narsingh er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Swansea síðan Paul Clement tók við liðinu.
Hinn 26 ára gamli Narsingh er réttfættur en hann getur leyst báðar kantstöðurnar.
Narsingh er búinn að standast læknisskoðun en hann verður þó ekki með gegn Arsenal á laugardaginn vegna smávægilegra meiðsla á kálfa.
Narsingh er búinn að standast læknisskoðun en hann verður þó ekki með gegn Arsenal á laugardaginn vegna smávægilegra meiðsla á kálfa.
#WelcomeLuciano 🙌 pic.twitter.com/mvBUgWHTgc
— Swansea City AFC (@SwansOfficial) January 12, 2017
