Fotbolti.net
12.01.17 - 17:08
Magnús Már Einarsson

Schneiderlin til Everton (Staðfest)

Morgan Schneiderlin.

Morgan Schneiderlin.

Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur keypt miðjumanninn Morgan Schneiderlin frá Manchester United.

Everton borgaði 20 milljónir punda fyrir Schneiderlin en kaupverðið gæti hækkað upp í 24 milljónir punda ef hann stendur sig vel hjá félaginu.

Schneiderlin kom til Manchester United frá Southampton á 24 milljónir punda árið 2015 en Ronald Koeman, stjóri Everton, þekkir Schneiderlin frá því að þeir voru báðir hjá Southampton.
„Everton er stórt félag með mikla sögu í enska boltanum,\" sagði Schneiderlin eftir undirskrift.

„Ég hef alltaf elskað andrúmsloftið á leikvanginum og ég hef alltaf haft gaman að því að spila hér,\" bætti Schneiderlin við um Goodison Park.

#WelcomeMorgan @SchneiderlinMo4! 🔵🔵🔵 pic.twitter.com/QqukVLzeFS

— Everton (@Everton) January 12, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.