12.01.17 - 17:43
Elvar Geir Magnússon
Tom Cleverley kominn í Watford (Staðfest)

Cleverley fer til Watford á lánssamningi.

Mynd: Getty Images

Cleverley fer til Watford á lánssamningi.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Tom Cleverley er orðinn leikmaður Watford en hann kemur á lánssamningi frá Everton út tímabilið.
Watford gefur út á Twitter að félagið muni hafa forkaupsrétt á leikmanninum eftir tímabilið og að nánari upplýsingar verði gefnar á morgun.
Watford gefur út á Twitter að félagið muni hafa forkaupsrétt á leikmanninum eftir tímabilið og að nánari upplýsingar verði gefnar á morgun.
Cleverley, sem er 27 ára, hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá Everton síðan hann kom til félagsins frá Manchester United sumarið 2015.
Fyrr í dag var tilkynnt að Morgan Schneiderlin væri genginn í raðir Everton og ákvað félagið að hleypa Cleverley burt þegar þau kaup voru klár.
Everton er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Watford í því fjórtánda.

#watfordfc confirms the signing of @Everton's Tom Cleverley on loan until the summer - with the option of a permanent move. More tomorrow. pic.twitter.com/bHw89uIL90
— Watford FC (@WatfordFC) January 12, 2017