Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 12. janúar 2021 20:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Özil í liði með Ronaldo í umræðunni áralöngu
Mynd: Getty Images
Mesut Özil er ekki mikið að spila fótboltaleiki þessa dagana, en þess í stað er hann mikið á samfélagsmiðlum.

Í gær tók hann upp á því að svara nokkrum spurningum frá aðdáendum sínum.

Hann var meðal annars spurður út í það hvort honum finnist Messi eða Ronaldo betri fótboltamaður. Özil spilaði með Ronaldo hjá Real Madrid og hann er á því að sá portúgalski hafi yfirhöndina.

„Messi hefur sannað sig sem einn sá allra besti á Spáni, en Ronaldo hefur alltaf verið sá besti í hvaða landi sem hann hefur spilað," skrifaði Özil.

Ronaldo hefur spilað með Sporting Lissabon, Manchester United, Real Madrid og Juventus á glæstum ferli.

Ronaldo og Messi eru tveir af bestu fótboltamönnum allra tíma og um árabil hafa menn deilt um það hvor sé betri. Það er erfitt að segja til um það hvort það sé rétt svar við þeirri spurningu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner