Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 12. febrúar 2019 19:25
Arnar Helgi Magnússon
Tvíburarnir úr Dalvík/Reyni í KA (Staðfest)
Mynd: KA.is
Tvíburabræðurnir Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórssynir eru gengnir til liðs við KA en þeir koma frá Dalvík/Reyni.

Þeir skrifuðu undir þriggja ára samning við Akureyrarfélagið.

Bræðurnir hafa vöktu mikla athygli síðasta sumar á meðal knattspyrnuáhugamanna fyrir góða frammistöðu inni á vellinum.

Þeir áttu stóran þátt í því að Dalvík/Reynir sigraði 3. deildina en þeir skoruðu 14 af 27 mörkum liðsins. Nökkvi var síðan valinn í lið ársins hér á Fótbolti.net

Eftir tímabilið í fyrra fór Nökkvi til norska félagsins Valerenga á reynslu en hann æfði einnig með FH síðastliðið sumar.

Tvíburarnir hafa æft með KA síðustu vikurnar en Þorri spilaði með KA í Kjarnafæðismótinu um síðustu helgi en bróðir hans Nökkvi var ekki með þar vegna meiðsla.

„Það verður gaman að sjá þessa ungu leikmenn í sumar og fengur fyrir KA að styrkja hópinn með ungum og efnilegum leikmönnum sem eiga framtíðina fyrir sér," segir á heimasíðu KA.
Athugasemdir
banner
banner
banner