Fotbolti.net
12.03.20 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Martial ekki með í kvöld - Styttist í Pogba

Martial ekki með í kvöld - Styttist í Pogba
Canon

Mynd: Getty Images

Anthony Martial verður ekki með Manchester United gegn LASK í Evrópudeildinni í kvöld.

Martial lenti illa á stönginni í sigrinum á Manchester City á sunnudaginn.

Martial þarf að hvíla í kvöld og hann er tæpur fyrir leikinn gegn Tottenham á sunnudaginn.

Betri fréttir eru af Paul Pogba en hann er að hefja æfingar með liðinu á ný eftir að hafa verið frá keppni síðan í lok desember.
„Hann er ekki byrjaður að æfa á fullu með liðinu en í næstu viku verður hann tilbúinn," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri United.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.