Fotbolti.net
12.04.18 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andri Adolphs í ÍA á láni (Staðfest)

Andri Adolphsson í leik með Val.

Andri Adolphsson í leik með Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA hefur fengið mjög góðan liðsstyrk fyrir átökin sem verða í Inkasso-deildinni í sumar. Skagamaðurinn uppaldi Andri Adolphsson er kominn á láni frá Íslandsmeisturum Vals.

Leikmannahópur Vals er ótrúlega sterkur og breiddin er mikil. Andri sá væntanlega ekki fram á að fá mörg tækifæri og mun því taka slaginn með uppeldisfélagi í sumar. Hann ætlar að hjálpa Skagamönnum að komast beint upp aftur í Pepsi-deildina.
Andri lék með ÍA fram til ársins 2015 en þá ákvað hann að fara í Val. Hann kom við sögu í 16 leikjum í deild og bikar í fyrra.

Jóhannes Karl Guðjónsson tók við ÍA eftir síðasta tímabil en liðið er að mestu byggt upp af heimamönnum.

Fyrsti leikur ÍA í Inkasso-deildinni verður gegn Leikni R. upp á Skaga þann 5. maí næstkomandi.

Komnir:
Bjarki Steinn Bjarkason frá Aftureldingu
Einar Logi Einarsson frá Kára
Hörður Ingi Gunnarsson frá FH
Marinó Hilmar Ásgeirsson frá Kára
Ragnar Leósson frá Leikni R.
Skarphéðinn Magnússon frá Kára
Viktor Helgi Benediktsson frá FH
Andri Adolphsson á láni frá Val

Farnir:
Guðmundur Böðvar Guðjónsson í Breiðablik
Ingvar Þór Kale í Kórdrengi
Patryk Stefanski
Rashid Yussuff
Viktor Örn Margeirsson í Breiðablik (Var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.