12.04.18 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Grindavík fær enskar tvíburasystur (Staðfest)

Grindavík fær liðsstyrk fyrir sumarið.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Thaisa De Moraes Rosa Moreno verður ekki áfram með Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík fær liðsstyrk fyrir sumarið.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir Pepsi-deild kvenna í sumar en tvíburasysturnar Rio og Steffi Hardy hafa samið við félagið. Þetta staðfesti þjálfarinn Ray Anthony Jónsson í samtali við Fótbolta.net í dag.
Rio er framherji en Steffi er varnarmaður. Þær voru síðast í háskólaboltanu í Bandaríkjunum en áður léku þær með Blackburn Rovers.
Talsverðar breytingar eru á hópnum hjá Grindavík síðan í fyrra en portúgalska landsliðskonan Carolina Mendes er horfin á braut sem og hin brasilíska Thaisa de Moraes Rosa.
Þá verður hin norður-írska Lauren Brennan ekki áfram hjá félaginu auk þess sem Anna Þórunn Guðmundsdóttir, Guðrún Bentína Frímannsdóttir og Sara Hrund Helgadóttir verða ekki með eftir að hafa verið í stóru hlutverki hjá Grindavík í áraraðir.
Komnar
Rio Hardy
Steffi Hardy
Margrét Hulda Þorsteinsdóttir
Farnar
Sara Hrund Helgadóttir
Emma Higgins
Carolina Mendes
Thaisa de Moraes Rosa
Lauren Brennan
Guðrún Bentína Frímannsdóttir
Anna Þórunn Guðmunsdóttir