12.04.18 - 17:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gulli Jóns tekur við Þrótti R. (Staðfest)

Gunnlaugur mun stýra Þrótti í Inkasso-deildinni í sumar.

Mynd: Þróttur R.

Gunnlaugur Jónsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari hjá Þrótti Reykjavík. Þetta staðfesti félagið með frétt á heimasíðu sinni. Samningurinn sem Gunnlaugur gerir rennur út eftir sumarið 2019.
Gregg Ryder hætti með Þrótt á þriðjudaginn og félagið þurfti að vinna hratt enda eru bara þrjár vikur í fyrsta leik í Inkasso-deildinni.
Eftir síðasta tímabil sagði Gregg í viðtölum að hann væri tilbúinn að halda áfram ef stjórnin sýndi metnað með því að vera tilbúin að styrkja leikmannahópinn. Hann gerði svo nýjan samning. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net voru Gregg og stjórnin ekki sammála með hvaða hætti ætti að styrkja liðið fyrir komandi tímabil.
Gregg tók við Þrótti eftir tímabilið 2013 eftir að hafa þjálfað yngri flokka ÍBV. Á hans öðru tímabili kom hann liðinu upp í Pepsi-deildina en liðið fór beint niður aftur. Það hafnaði í þriðja sæti Inkasso-deildarinnar síðasta sumar og var fjórum stigum frá öðru sætinu.
Gunnlaugur var síðast þjálfari ÍA en hann hætti þar um miðjan ágúst í fyrra þar sem liðið var í slæmri stöðu. Hann hefur einnig þjálfað Selfoss, Val, KA og HK á þjálfaraferlinum.
„Gunnlaugur er með KSÍ A-gráðu í þjálfun og hefur á ferli sínum þjálfað Selfoss, Val, KA, HK og ÍA jafnframt því að hafa leikið 12 A-landsleiki og yfir 200 meistaraflokksleiki i efstu deild og bikar með ÍA og KR og er því ljóst að með komu hans kemur jafnframt mikil reynsla sem á eftir að reynast liðinu vel á komandi misserum. Gunnlaugur mun auk þess að þjálfa meistaraflokkinn hafa yfirumsjón með uppbyggingu yngri flokka starfs félagsins í samráði við þjálfarateymi Þróttar,\" segir í frétt Þróttar um ráðninguna.
Gunnlaugur hefur verið með hlaðvarpsþætti á Fótbolta.net síðustu vikur. Þeir bera heitið Návígi og hafa fengið verðskuldað lof.
Návígi:
Ólafur Þórðarson
Veigar Páll Gunnarsson
Rúnar Kristinsson
Ólafur Kristjánsson
Ólafur Jóhannesson
Heimir Hallgrímsson
Heimir Guðjónsson - Fyrri hluti
Heimir Guðjónsson - Seinni hluti
Sjá einnig:
Hlustaðu gegnum Podcast forrit