12.04.26 - 19:52
Kári Snorrason
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Auglýsing

Alexander fagnaði upp á sextán ára afmælið sitt á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn sextán ára gamli Alexander Rafn Pálmason reyndist hetja KR í dag er hann skoraði sigurmark KR-inga gegn Keflavík.
Keflvíkingar leiddu 2-1 þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma en KR sneri taflinu við og uppskar dramatískan 3-2 sigur.
Fótbolti.net ræddi við Alexander að leik loknum.

Lestu um leikinn: KR 3 - 2 Keflavík
„Tilfinningin var æðisleg, mjög góð. Ég náði að bjarga þessu, gaf eitt til að skora annað. Hafa smá spennu í þessu, er það ekki sem fólkið vill?“
„Ég fór á hægri kantinn síðustu tuttugu mínúturnar. Eina sem ég hugsaði var það að skila mér á fjærsvæðið. Síðan kemur skot og boltinn dettur fyrir framan mig og set hann í netið.“
Alexander fer út til Nordsjælland um mitt sumar, hann var spurður út í markmið sín með KR fyrir Danmerkur förina.
„Ég vil reyna spila eins mikið og ég get og skilja við KR á sem besta stað sem mögulegt er.“