Stórleikur helgarinnar fer fram á Stamford Bridge í dag þegar heimsmeistarar Chelsea taka á móti titilbaráttuliði Manchester City.
Liam Rosenior gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu sem rúllaði yfir Port Vale í enska bikarnum um síðustu helgi. Marc Cucurella kemur inn í byrjunarliðið ásamt Moisés Caicedo.
Tosin Adarabioyo og Romeo Lavia setjast á bekkinn og fær Jorrel Hato því tækifæri í hjarta varnarinnar. Caicedo byrjar við hlið Andrey Santos á miðjunni og fær fyrirliðabandið.
Pep Guardiola gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliðinu frá góðum sigri gegn Liverpool í bikarnum um síðustu helgi. Gianluigi Donnarumma kemur inn á milli stanganna fyrir James Trafford.
Man City getur sett gríðarlega pressu á topplið Arsenal með sigri í dag eftir að Arsenal tapaði óvænt heimaleik gegn Bournemouth í gær.
Chelsea: Sanchez, Gusto, Fofana, Hato, Cucurella, Santos, Caicedo, Estevao, Palmer, Neto, Joao Pedro.
Varamenn: Sharman-Lowe, Acheampong, Tosin, Sarr, Essugo, Lavia, Garnacho, Guiu, Delap.
Man City: Donnarumma, Nunes, Khusanov, Guehi, O’Reilly, Rodri, Silva, Semenyo, Cherki, Doku, Haaland.
Varamenn: Trafford, Reijnders, Ake, Marmoush, Kovacic, Gonzalez, Ait-Nouri, Savinho, Foden.


