Fotbolti.net
12.04.26 - 16:21
Kári Snorrason
Kjarninn

Byrjunarlið KR og Keflavíkur: Óbreytt hjá KR - Keflvíkingar án fyrirliðans

Frans Elvarsson, fyrirliði Keflavíkur, er utan hóps.

Frans Elvarsson, fyrirliði Keflavíkur, er utan hóps.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KR fær nýliða Keflavíkur í heimsókn á Meistaravelli eftir tæpa klukkustund. Ívar Orri Kristjánsson flautar leikinn af stað klukkan 17:00 og búið er að opinbera byrjunarliðin.
Lestu um leikinn: KR 3 - 2 Keflavík
Óskar Hrafn Þorvaldsson gerir engar breytingar á byrjunarliði sínu frá 4-2 sigri gegn Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins síðastliðinn mánudag.

Sigurður Breki Kárason er enn utan hóps en hann er að ná sér eftir að hafa fengið heilahristing.

Haraldur Freyr Guðmundsson gerir eina breytingu á byrjunarliði Keflavík frá tapi gegn Grindavík í Mjólkurbikarnum um síðustu helgi.

Halid Alghoul tekur sér sæti á bekknum en inn kemur bróðir hans Muhamed Alghoul. Frans Elvarsson, fyrirliði Keflavíkur, er utan hóps.

Byrjunarlið KR

Arnar Freyr Ólafsson, Michael Osei Akoto, Finnur Tómas Pálmason, Eiður Gauti Sæbjörnsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Amin Cosic, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Ástbjörn Þórðarson, Arnór Ingvi Traustason, Hrafn Tómasson

Byrjunarlið Keflavík

Ásgeir Orri Magnússon, Ígnacio Heras Anglada, Davíð Helgi Aronsson, Sindri Snær Magnússon (fyrirliði), Dagur Ingi Valsson, Þorlákur Breki Þ. Baxter, Stefan Alexander Ljubicic, Muhamed Alghoul, Anton Kralj, Ásgeir Páll Magnússon, Eiður Orri Ragnarsson

Óskar heldur liði sínu óbreyttu.

Óskar heldur liði sínu óbreyttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.