Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 16:09
Sölvi Haraldsson
Byrjunarlið Vals og Þórs: Tveir fæddir 2008 byrja hjá Þór - Hemmi gerir tvær breytingar
Mynd: Ármann Hinrik
Valsmenn fá Þór í heimsókn klukkan 17:00 í dag í opnunarumferð Bestu deildarinnar. Rúmur klukkutími er í leik og byrjunarliðin voru að skila sér hús.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  2 Þór

Valsmenn gera tvær breytingar á sínu lið frá bikarleiknum gegn KR á dögunum. Markus Nakkim og Adam Ægir Pálsson koma úr liðinu fyrir þá Ingimar Stöle og Albin Skoglund.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn FH í bikarnum. Hann Bjarni Guðjón Brynjólfsson dettur úr liðinu fyrir Einar Frey Halldórsson. Einar Freyr og Ásbjörn Líndal eru fæddir 2008.
Byrjunarlið Valur:
18. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
6. Bjarni Mark Duffield
11. Ingimar Torbjörnsson Stöle
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Albin Skoglund
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
19. Dagur Orri Garðarsson
21. Jakob Franz Pálsson
22. Birkir Heimisson

Byrjunarlið Þór :
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
7. Atli Sigurjónsson
8. Einar Freyr Halldórsson
9. Sebastian Heimvik Haugland
15. Kristófer Kristjánsson
19. Ragnar Óli Ragnarsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
25. Christian Greko Jakobsen
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
Slapp
banner