Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 15:02
Ívan Guðjón Baldursson
England: Tap í fyrsta leik De Zerbi - Dramatískt sigurmark í London
Mynd: Sunderland
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tottenham er tveimur stigum frá öruggu sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir að liðið tapaði útileik gegn nýliðum Sunderland í fyrsta leik Roberto De Zerbi við stjórnvölinn.

Hvorugu liði tókst að skora í spennandi fyrri hálfleik þar sem Antonín Kinský átti stórbrotna markvörslu til að halda stöðunni markalausri.

Leikurinn róaðist umtalsvert niður í síðari hálfleik og var það skot frá varnarmanninum Nordi Mukiele sem endaði á að ráða úrslitum. Skot hans utan vítateigs breytti um stefnu af varnarmanni og endaði í netinu.

Lærlingum De Zerbi tókst ekki að ógna mikið í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 1-0 fyrir Sunderland, sem er afar óvænt í baráttu um evrópusæti á sínu fyrsta tímabili aftur í efstu deild. Tottenham er aftur á móti í fallsæti með 30 stig eftir 32 umferðir, tveimur stigum á eftir West Ham.

Nottingham Forest er þá þremur stigum fyrir ofan Tottenham í fallbaráttunni eftir að hafa náð jafntefli á heimavelli gegn Aston Villa. Þess má geta að Cristian Romero fór meiddur af velli eftir ljótt samstuð við Antonín Kinský markvörð.

Murillo skoraði sjálfsmark eftir fasta fyrirgjöf í fyrri hálfleik en Neco Williams jafnaði með góðu skoti frá vítateigslínunni svo staðan var jöfn í leikhlé.

Hvorugu liði tókst að bæta marki við leikinn í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 1-1. Aston Villa er áfram í frábærri stöðu í baráttunni um meistaradeildarsæti, sjö stigum fyrir ofan Chelsea sem á leik til góða gegn Manchester City í dag.

Að lokum skoraði Crystal Palace dramatískt sigurmark á heimavelli gegn Newcastle United. William Osula fékk sjaldgæft tækifæri með byrjunarliðinu og skoraði eina markið í fyrri hálfleik eftir laglegt samspil samherja hans úti á hægri kantinum.

Heimamenn í Palace voru sterkari aðilinn í seinni hálfleiknum en tókst þó ekki að gera jöfnunarmark fyrr en á 80. mínútu. Jean-Philippe Mateta var þar á ferðinni þegar hann skallaði boltann í netið eftir frábæra sókn og góða stoðsendingu frá Tyrick Mitchell.

Í uppbótartímanum skoraði Mateta svo annað mark eftir að Sven Botman var dæmdur brotlegur fyrir peysutog innan vítateigs. Mateta skoraði af vítapunktinum og tryggði 2-1 sigur fyrir Palace.

Liðin eru jöfn í neðri hluta deildarinnar með 42 stig. Þau eru í afar þéttum pakka, aðeins fimm stigum frá evrópusæti.

Sunderland 1 - 0 Tottenham
1-0 Nordi Mukiele ('61 )

Nott. Forest 1 - 1 Aston Villa
0-1 Murillo ('23 , sjálfsmark)
1-1 Neco Williams ('38 )

Crystal Palace 2 - 1 Newcastle
0-1 William Osula ('43 )
1-1 Jean-Philippe Mateta ('80 )
2-1 Jean-Philippe Mateta ('94, víti)
Slapp
banner