Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   sun 12. apríl 2026 19:59
Sölvi Haraldsson
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn töpuðu fyrir Þór í dag 2-1 í opnunarumferð Bestu deildarinnar. Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, kom í viðtal eftir tap Valsmanna og ræddi um þessa byrjun á Bestu deildinni.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  2 Þór

Hemmi segir að Valsmenn hafi stýrt leiknum frá A til Ö.

„Mér líður ömurlega, auðvitað er alltaf hægt að tala um hvort þetta hafi verið sanngjarnt eða ekki sanngjarnt en við stýrðum þessum leik frá A til Ö. Okkur leið vel á vellinum en nýtum stöðurnar illa og lokasendingarnar. Svo erum við í áhlaupum sem við nýttum illa, þá færð þú þetta oft í hnakkann.“

Áfram talar Hermann um að Valsmenn höfðu stýrt leiknum frá A til Ö og komist í frábærar stöður.

„Mér fannst þetta vera mjög sterk frammistaða, við stjórnuðum þessum leik frá A til Ö. Við komumst í þær stöður sem við vildum komast í en fórum bara illa með þessar frábæru stöður, ef við hefðum farið vel með þær hefði þetta verið frábær dagur fyrir okkur.“

Hvað er það sem Valsmenn þurfa að gera til að snúa svona úrslitum í sigra?

„Þetta er fyrsti leikurinn í mótinu. Frammistaðan var jákvæð og við komumst í þær stöður sem við vildum. En svo eru það bara gæðin á seinasta þriðjung sem við þurfum að láta telja. Ég var ánægður með mjög mikið í dag, við getum bara byggt ofan á þessa frammistöðu. Við komumst í frábærar stöður í dag sem við þurfum að láta telja en við gerðum það ekki í dag.“ sagði Hermann.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner