Fotbolti.net
12.04.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Jökull: KA hefur lært af síðustu tveimur árum

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segist búast við mjög erfiðum leik þegar liðið heimsækir KA í 1. umferð Bestu deildarinnar í dag.
Stjörnumenn byrja á Greifavellinum en þeir koma með mjög spennandi hóp inn í mótið og er alveg óhætt að segja að KA-menn geri það líka.

Jökull var mættur í höfuðstöðvar KSÍ á dögunum þegar dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins og ræddi þar fyrsta leik Stjörnumanna í Bestu deildinni.

„Mér líst vel á það og sýnist spáin vera góð, sem er það eina sem maður er hræddur um og aftur hefði maður viljað vera nær fólkinu okkar þannig það gætu verið fleiri Stjörnumenn á vellinum.“

„Þetta verður erfiður leikur. Þeir eru með gott lið og búnir að sækja áhugaverða leikmenn og þeir verða erfiðir í byrjun móts. Ég held að þeir eru ekki að fara inn í mót eins og þeir hafa gert síðustu tvö ár. Þeir hafa lært af því og þetta verður hörkuleikur,“
sagði Jökull við Fótbolta.net.

Hann segir stöðuna á hópnum vera nokkuð góða og að lang flestir séu klárir í slaginn.

„Einhverjir eru með hnjask og einhverjir að skríða saman en lang flestir verða klárir í leikinn,

Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.