Fotbolti.net
12.04.26 - 11:36
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Mikael og Berardi reknir af velli í leikmannagöngunum

Mikael og Berardi reknir af velli í leikmannagöngunum
Canon

Mynd: EPA

Mikael Egill Ellertsson er mikilvægur hlekkur í fallbaráttuliði Genoa í efstu deild á Ítalíu og var á sínum stað í byrjunarliðinu í mikilvægum slag gegn Sassuolo í dag.
Mikael átti góðan fyrri hálfleik og er staðan 1-0 fyrir Genoa þegar seinni hálfleikurinn er að hefjast. Mikael mætir þó ekki aftur inn á völlinn þar sem hann fékk að líta beint rautt spjald í hálfleik.

Leikmenn voru að ganga til búningsklefa þegar Domenico Berardi, fyrrum landsliðsmaður Ítalíu, lenti í handalögmálum í leikmannagöngunum. Portúgalski framherjinn Vitinha reyndi að halda aftur af Ítalanum og skarst Mikael svo inn í leikinn til að hjálpa liðsfélaga sínum.

Á sama tíma gekk Antonio Rapuano dómari inn í göngin og tók eftir slagsmálunum. Hann var fljótur að gefa Berardi og Mikael sitthvort rauða spjaldið svo bæði lið mæta til leiks í síðari hálfleikinn með 10 leikmenn á vellinum.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.