Fotbolti.net
12.04.26 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stuðningsmaður City hæddist að Arsenal í beinni útsendingu

Rayan Cherki fagnar með stuðningsmönnum Man City.

Rayan Cherki fagnar með stuðningsmönnum Man City.

Canon

Mynd: EPA

Myndband af stuðningsmanni Manchester City fer nú sem eldur í sinu um veraldarvefinn.

Stuðningsmaðurinn hæddist að Arsenal í beinni útsendingu frá leik City gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.
England: Man City setur alvöru pressu á Arsenal
TENGT EFNI

England: Man City setur alvöru pressu á Arsenal

City vann leikinn 0-3 og setti alvöru pressu á Arsenal í baráttunni um enska meistaratitilinn með þeim sigri.

Arsenal hefur verið með forystu nánast allt tímabilið en þeir hafa verið að hiksta að undanförnu. Ekki væri þetta í fyrsta sinn sem Arsenal myndi klúðra hlutunum úr góðri stöðu. Á Englandi er talað um 'to bottle' eða að klúðra einhverju undir pressu.

Stuðningsmaður Man City mætti með flösku (e. bottle) með Arsenal límmiða í stúkuna og þóttist drekka úr henni. Sjónvarpsmenn á Englandi voru fljótir að sjá þetta og sýndu þetta í sjónvarpinu.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem er í mikilli dreifingu þessa stundina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.