Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 21:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tjáði sig um fréttirnar af Oliver
Oliver Heiðarsson.
Oliver Heiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Oliver er sagður á leið í KA.
Oliver er sagður á leið í KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram kom hér á Fótbolta.net í gær að framherjinn Oliver Heiðarsson væri á leið til KA frá króatíska úrvalsdeildarfélaginu Lokomotiva Zagreb.

Oliver er 25 ára gamall leikmaður og hefur spilað með Þrótti, FH og ÍBV hér á landi. Hann á að baki 124 meistaraflokksleiki á Íslandi og hefur skorað í þeim 29 mörk.

Í byrjun ársins gekk hann í raðir Lokomotiva frá ÍBV en fengið fá tækifæri til að sýna sig og ekki verið í hópnum í síðustu sex leikjum.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var spurður út í Oliver eftir 2-3 tap gegn Stjörnunni í dag.

„Við erum áhugasamir en ég veit ekki hvernig staðan er á því. Við erum klárlega áhugasamir," sagði Haddi og hélt áfram:

„Þetta er strákur sem við höfum fylgst með og haft áhuga á í nokkur ár."

Einnig var sagt frá því hér á Fótbolta.net á föstudag að tilboð Keflavíkur í Oliver hafi verið samþykkt og svo var greint frá því að félagið þyrfti ekki greiða fyrir hann en að Lokamotiva fengi 20 prósent af næstu sölu. Keflavík var þó ekki eina liðið sem var í baráttu um Oliver en KA, Breiðablik og Valur sýndu mestan áhuga. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net bauð KA framherjanum mjög góðan samning og er hann nú á leið þangað.

Oliver er sonur fyrrum landsliðsmannsins Heiðars Helgusonar, sem lék lengst af á Englandi, meðal annars með Fulham, Watford og QPR.
Slapp
banner
banner