Fotbolti.net
12.05.17 - 20:53
Dagur Lárusson

England: Chelsea Englandsmeistari (Staðfest)

Chelsea fagnar sigrinum í kvöld.

Chelsea fagnar sigrinum í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Tveir leikir fóru fram í enska úrvaldsdeildinni í kvöld. Everton tók á móti Watford á Goodison Park á meðan að Chelsea fór í heimsókn á The Hawthorns. Með sigri gat Chelsea orðið Englandsmeistari.
Fyrri hálfleikurinn í viðureign Everton og Watford var heldur bragðdaufur en það var þó Everton sem vera betri aðilinn og skapaði sér fleiri færi.

Í seinni hálfleik var það síðan Ross Barkley sem að skoraði fyrir Everton á 56. mínútu með frábæru marki utan teigs. Þetta reyndist eina mark leiksins og því lokatölur 1-0 fyrir Everton.

Í seinni leik kvöldsins gat Chelsea tryggt sér Englandsmeistaratitilinn með sigri á WBA á The Hawthorns. Eins og við mátti búast þá var Chelsea heldur betri aðilinn í fyrri hálfleik og var mikið meira með boltann en náði ekki að skapa sér nægilega góð færi.

Í seinni hálfleiknum komu Chelsea staðráðnir í að skora mark snemma og settu nánast alla menn í sóknina. Chelsea sóttu og sóttu allan seinni hálfleikinn og markið mikilvæga kom síðan loksins á 81.mínútu þegar Victor Moses gaf fyrir á Michy Batshuayi sem að skoraði framhjá Ben Foster í markinu. 0-1 var lokastaðan og Chelsea því Englandsmeistari í fimmta skiptið.

Everton 1 - 0 Watford
1-0 Ross Barkley (56´)

WBA 0 - 1 Chelsea
0-1 Michy Batshuayi (81´)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.