12.05.17 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Harry heldur áfram með Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Harry Redknapp hefur skrifað undir eins árs samning við Birmingham en hann mun stýra liðinu í Championship deildinni á næsta tímabili.
Hinn sjötugi Redknapp tók við Birmingham af Gianfranco Zola þegar þrír leikir voru eftir á nýliðnu tímabili.
Tveir sigrar í þremur leikjum hjálpuðu Birmingham að bjarga sæti sínu eftir að útlitið hafði verið dökkt.
Redknapp samdi um að fá ekki neitt borgað ef liðið hefði fallið en hann hefur nú fengið greitt auk þess sem hann var verðlaunaður með nýjum samningi.

Redknapp er mjög reyndur en hann hefur meðal annars stýrt Tottenham, Portsmouth, West Ham og QPR á ferli sínum.