12.05.17 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Maggi Lú og Viktor Unnar í Kórdrengina (Staðfest)

Magg Lú hefur tekið fram skóna á ný.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magg Lú hefur tekið fram skóna á ný.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengirnir, nýtt lið í 4. deildinni, hefur fengið tvo leikmenn með mikla reynslu til liðs við sig. Um er að ræða þá Magnús Má Lúðvíksson og Viktor Unnar Illugason.
Hinn 35 ára gamli Magnús Már lagði skóna á hilluna eftir að hafa leikið með Fram árið 2015 en hann hefur nú rifiði fram skóna á nýja leik.
Maggi lék meðal annars með KR, Val, ÍBV og Þrótti R. á ferli sínum en hann hefur skorað 41 mark í 248 deildar og bikarleikjum á Íslandi.
Viktor Unnar yfirgaf herbúðir Þróttar í vetur eftir að hafa leikið með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra.
Hinn 27 ára gamli Viktor hefur skorað 20 mörk í 135 deildar og bikarleikjum en auk Þróttar hefur hann leikið með Breiðabliki, Val, Selfossi, HK og Njarðvík. Þá var Viktor í unglingaliði Reading á Englandi á sínum tíma.
Kórdrengirnir mæta Snæfell/UDN í fyrsta leik í 4. deildinni í Stykkishólmi þann 23. maí.

Viktor Unnar Illugason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð